Hlaðvarp - „Tek einn dag í einu“

Sólveig Kolbrún Pálsdóttir

Mynd: Mummu Lú

Gestur hlaðvarpsins er Egill Þór Jónsson, félagsfræðingur og borgarfulltrúi í Reykjavík. Egill hefur undanfarna mánuði sótt endurhæfingu í Ljósið, en hann greindist með eitilfrumu krabbamein í vor. Í hlaðvarpinu ræðir Egill um æskuna, pólitíkina og endurhæfinguna í Ljósinu. Egill Þór ræðir einnig hvernig Covid og umræðan um álag á Landspítala hafi gert það að verkum að hann hafi hikað við að sækja þangað aðstoð.